Gistiheimilið Stöng Mývatnssveit

img_0286_640_01


Gistiheimili á kyrrlátum stað með fallegu útsýni yfir fallegt vel gróið land. Þaðan er falleg gönguleið á Sandfell auk þess sem það vel staðsett til skoðunarferða í helstu náttúruperlur Þingeyjarsýslu.Veitingasalur þar sem hægt er að fá allt frá morgunverði til þriggja rétta máltíða. Aðgangur er að tveim stórum heitum pottum.

 

hus2_393

Á staðnum eru fimm ný heilsárshús 4 til 6 manna og eru þau öll vel búin.

Nýjustu fréttir

  • Villibráðarhlaðborð 2010.

    villibradakvold

     

     


  • Hvalaskoðun og sjóstangaveiði frá Hauganesi við Eyjafjörð

    niels3

    Myndir frá Hvalaskoðunarferð sem farin var fyrir nokkru með hvalaskoðunar bátnum Nielsi Jónssyni frá Hauganesi í Eyjafirði. Mikið hefur sést af hval í utanverðum eyjafirði í sumar. Hnúfubakar hafa sést meira en venjulega, svo eru alltaf hrefnur, hnýsur og Höfrungar á ferðinni. Steypireyður sást í einni ferðinni. 

    niels1

    Árni Halldórsson og áhöfn eru með áratuga reynslu í hvalaskoðun og því var ekki að spyrja að hvalir sáust svo um munaði í þessari frábæru ferð.

     niels4

    Rennt var fyrir fisk og ekki stóð á þeim gula hann var á í hverju rennsli. Cosima með einn vænan og hundarnir Korri og Hekla fylgjast vel með viðureigninni. (sjá fleiri myndir í myndasafni undir Hvalaskoðun)

     

     


  • Jökulsá á Fjöllum

    jkuls_fjllum1

    Jökulsá á fjöllum er mikil á og víða mjög fallegt við hana. Mynd tekinn við Vesturdal.

     dettifoss

    Dettifoss í allri sinni dýrð. (myndir Vilhjálmur Kjartansson)


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning