Fréttir

Gott rjúpnaveiðitímabíl

rjupnaveidi2008 

Arnar og Korri á síðasti rjúpnaveiðidegi  2008

Rjúpnaveiði var ágæt hér á Norðurlandi. Töluvert mikið sást af rjúpu og voru veiðimenn að gera ágæta veiði þegar veður var gott og aðstæður hagstæðar. Eftir fyrstu skoðanir nátturufræðistofnunnar á rjúpnavængjum er nýliðun góð eða um 76% ungfugl í afla veiðimanna. Þannig að stofnin er á hraðri uppleið hér Norðanlands.

Þetta er búið að vera gott veiðitímabil hjá Haust og vetrarveiðiferðum, fyrst gæsaveiðin sem stóð næstum út október og síðan tók rjúpnaveiðin strax við. Það hafa farið margir ánægðir veiðimenn frá okkur og margir hafa þegar pantað veiði hjá okkur að ári.

Við hjá Haust og vetrarveiðiferum höfum útbúið gjafabréf sem eru tekin út í veiði og gistingu og eru tilvalin jóla eða afmælisgjöf til veiðimannsins sem á allar veiðigræjur og fatnað.

Hægt er að panta svona gjafabréf á stong@stongis og þau eru þá sent um hæl til viðkomandi. Einnig er veiði og útivistarverslunin ICEFIN Nóatúni að selja þessi gjafabréf.

 Hér að neðan er sýnishorn af svona gjafabréfi en þau eru á verðbilinu 10 til 50 þús.kr.

gjafabref



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning