Mikið af Heiðargæs.
- fimmtudagur 28.ágú.08 22:52 - Jón Ingi Guðmundsson - Lestrar 180
Gæsaveiðin fer vel af stað og er óvenju mikið af heiðargæs á túnum við Stöng í Mývatnssveit. Komið hefur fyrir að allur dagsaflinn hjá veiðimönnum hefur verið heiðargæs. Á myndinni hér að ofan sem tekinn var í morgun er Árni Halldórsson með góða morgunveiði og allt heiðargæs.





