Refaskyttan Sigurður Ásgeirsson.
- föstudagur 17.des.10 21:59 - Jón Ingi Guðmundsson - Lestrar 19

Út er komin bók um Sigurð Ásgeirsson sem var landsþekkt refaskytta og einstakt náttúrubarn. Hann þekkti lifnaðarhætti refa flestum öðrum betur, hagnýtti sér atferli fuglanna til að fylgjast með ferðum lágfótu. Margar skemmtilegar veiðisögur eru í bókinni, sagðar af Sigurði sjálfum og vinum hans.
Bókin er um 200 blaðsíður, prýdd 153 ljósmyndum, gömlum og nýjum.
Bókin fæst hjá Landgræðslu ríkisins og í veiðibúðum og kostar 4000 kr.
Pantanasími 488-3000. Netfang:land@land.is





