Fréttir

Fallegt veður við Mývatn.

Mynd þessi var tekinn við Mývatn 1.nóv.2008 í fallegu veðri. Fyrsti dagur rjúpnaveiða var þennan dag og voru margir veiðimenn á ferð á svæðinu. 

Villibráðarhlaðborð haustið 2008.

Hið árlega villibráðarhlaðborð Gistiheimilisins Stangar ehf. og Haust og vetrarveiðiferða verður haldið 3 og 4 október n.k.  Boðið verður upp á fjölbreytt úrval villibráðar ásamt vinsælum steikum af lambi úr Mývatnssheiðinni. Sérstakt tilboð verður á gistingu þessa helgi. Ef stærri hópar vilja koma og njósta þessara kræsingana er hægt að fá tilboð í pakkann.

Gott veður á hálendinu.

Snæfell, séð frá vestri. Myndir var tekinn á Hreindýraveiðum þann 19.ágúst. Hægt er að sjá myndir frá hreindýraveiði á veiðisíðunni www.stong.is/veidi

Hvalaskoðun.

Þessi mynd er frá Eyjafirði og tekin um borð í hvalaskoðunar bátnum Níelsi Jónssyni, en hann fer í sjóstanga og hvalaskoðunar ferðir eftir pöntunum frá Hauganesi í Eyjafirði. Fleiri myndir og upplýsingar eru undir slóðinni:http://stong.is/veidi/page/hvalaskodun

Bjór sérmerktur fyrir Gistiheimilið Stöng.

Bruggsmiðjan ehf. Árskógssandi tappar á sérmerktan bjór fyrir Gistiheimilið Stöng. Bjórinn ber nafnið Stöngull. Þessi bjór er ljós og er bruggaður eftir aldagamalli tékkneskri hefð. Bjórinn er 5 % að styrkleika og þykir mjög bragðgóður.Bjórinn er seldur í veitingarsal Gistiheimilisins Stangar. Frá veitingasal Gistiheimilisins Stangar.

Myndir frá Stöng teknar í góðu veðri 1.júní 2008

Lambfé komið út á beit. Álftir og gæsir á beit og Stöng í baksýn. Séð yfir að Mývatni frá Mývatnsheiði. 

Sumarið komið ?

Stöng í Mývatnssveit. Það lítur út fyrir að sumarið sé komið því veðurspáin næstu daga gerir ráð fyrir góðu veðri. Þessi mynd var tekinn í blíðskapar veðri síðasta sumar og er tekin frá norðanverðu Sandfelli.