30.12.2010
Bláfjall í Mývatnssveit.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir liðið ár. Þökkum viðskiptin og ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Ásmundur og Svala
Gistiheimilið Stöng.
18.07.2010
Myndir frá Hvalaskoðunarferð sem farin var fyrir nokkru með hvalaskoðunar bátnum Nielsi Jónssyni frá Hauganesi í Eyjafirði. Mikið hefur sést af hval í utanverðum eyjafirði í sumar. Hnúfubakar hafa sést meira en venjulega, svo eru alltaf hrefnur, hnýsur og Höfrungar á ferðinni. Steypireyður sást í einni ferðinni.
Árni Halldórsson og áhöfn eru með áratuga reynslu í hvalaskoðun og því var ekki að spyrja að hvalir sáust svo um munaði í þessari frábæru ferð.
Rennt var fyrir fisk og ekki stóð á þeim gula hann var á í hverju rennsli. Cosima með einn vænan og hundarnir Korri og Hekla fylgjast vel með viðureigninni. (sjá fleiri myndir í myndasafni undir Hvalaskoðun)
20.05.2010
Jökulsá á fjöllum er mikil á og víða mjög fallegt við hana. Mynd tekinn við Vesturdal.
Dettifoss í allri sinni dýrð. (myndir Vilhjálmur Kjartansson)
20.05.2010
Sumarið er komið og rjúpna karrinn fer í sinn besta skrúða til að hæna að sér kvenfuglana. Hann helgar sér svæði og tyllir sér gjarnan upp á hól eða hraundranga þar sem hann er áberandi. (mynd Vilhjálmur Kjartansson)
02.03.2010
Það hefur aðeins snjóað á Mývatnssheiðinni eftir alveg einmuna tíð í janúar og framan af febrúar.Þessa mynd tók Sigurbjörn Ásmundsson 28. febrúar s.l. (séð heim að Stöng)
19.01.2010
Séð frá Sandfelli og norður að Stöng.
Sigurbjörn Ásmundsson tók þessar myndir í dag. Eins og sjá má er ekki mjög vetrarlegt miðað við það það skuli vera miður janúar.
Séð yfir að Mývatni, tekið frá Sandfelli.